Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fjórar skákir og tímamörkin eru 15 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.

Rússneski stórmeistarinn og Selfyssingurinn síkáti Alexander Donchenko (2660) mætir til leiks en hann tefldi með Skákfélagi Selfoss og nágrennis á Íslandsmóti skákfélaga á dögunum! Einnig má gera ráð fyrir þónokkrum sterkum íslenskum skákmönnum.
- Auglýsing -