Helgi Áss og Guðmundur freista þess að fá keppnisrétt á heimsbikarmótinu. Mynd: GB

Heimsbikarmótið í skák fer fram í Sochi í Rússlandi í júlí-ágúst. Þegar er ljóst að Ísland á þar a.m.k. einn fulltrúa, Hjörvar Stein Grétarsson, sem ávann sér keppnisrétt með sigri í Íslandsbikarnum.

Þann 24-30. maí fer fram Evrópumótið í netskák. Á því eru í boði 36 sæti á Heimsbikarmótið.  Þar eru skráðir til leiks þrír íslenskir stórmeistarar; Héðinn Steingrímsson (2510), Guðmundur Kjartansson (2500) og Helgi Áss Grétarsson (2441). Allir íslensku keppendurnir tefla í húsnæði Skáksamband Ísland undir eftirliti myndavéla og skákstjóra.

Teflt er eftir útsláttarfyrirkomulagi og til að komast á heimsbikarmótið þarf sigur í þremur tveggja skáka einvígum þar sem tefld er kappskák. Verði staðan 1-1 verður teflt til þrautar með styttri umhugsunartíma.

Í fyrsta einvíginu, sem fram fer 24. og 25. maí, verða viðureignir íslensku keppendanna sem hér segir:

  • GM Héðinn Steingrímsson (2510) – GM Maksim Chigaev (2631), Rússlandi
  • GM Helgi Áss Grétarsson (2441) – GM Aleksandr Shimanov (2597), Rússlandi
  • GM Guðmundur Kjartansson (2500) – GM Stelios Halkias (2567), Grikklandi

Nánar um mótið þegar nær dregur.

Pörunartré mótsins

Mótsreglur mótsins

- Auglýsing -