Þessa dagana fer fram enn eitt ofurmótið á Chess24. Mótið ber heitir Goldmoney Asian Rapid og er hluti Meltwater Champions Chess Tour. Sextán keppendur taka þátt og átta efstu komas í útsláttarkeppnina. Fjöldi skákmanna frá Asíu tekur þátt sem ekki kemur á óvart miðað við styrktaraðila mótsins!
Levon Aronian og Ding Liren er efstir með 7 vinninga þegar 10 umferðum af 15 er lokið. Magnús Carlsen og Anish Giri eru í 5.-6. sæti með 6 vinninga.
Meðal þeirra sem ekki eru á topp átta og eru því úti í kuldanum eins og eru Alireza Firouzja, Daniil Dubov og Peter Svidler.

Undankeppninni lýkur í dag. Útsláttarkeppnin hefst á morgun.
- Auglýsing -
















