Hannes að tafli á Íslandsmóti skákfélaga. Mynd: Ómar Óskarsson.

Stórmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2517) hlaut 5½ vinning af 9 mögulegum á alþjóðlegu móti í Budejovice í Tékklandi sem lauk í gær.

Árangur hans var í fullkomnu samræmi við skákstig. Úrslit Hannesar

 

Hannes tefldi í lokuðum 10 manna flokki. Meðalstigin voru 2440 skákstig og var Hannes þriðji í stigaröð keppenda.

Íslendingar erlendis

Hannes hefur taflmennsku í dag í Prag á öðru 10 manna móti. Þar er hann stigahæstur keppenda. Sjá Chess-Results.

Guðmundur Kjartansson hefur einnig í dag taflmennsku á alþjóðlegu móti. Hann teflir í Varsjá í Póllandi. Þar er teflt til minningar um Najdorf. Sjá nánar á heimasíðu mótsins.

Hann tefldi í gær á hraðskákmóti þar sem hann lenti í 4.-8. sæti. Sjá hér.

Henrik Danielsen og Hilmir Freyr Heimisson tefla í Köge í Danmörku. Þegar 6 umferðum af níu er lokið er Henrik efstur með 5½ vinning. Hilmir er í 8.-15. sæti með 4 vinninga. Úrslitaþjónusta frá mótinu.

Hjörvar Steinn Grétarsson hefur taflmennsku á heimsbikarmótinu í mánudaginn. Hann mætir Kiril Stupak í fyrstu umferð. Skákvarpið verður beinar útsendingar frá Hjörvari. Nánar um það síðar. Heimasíða mótsins

Vignir Vatnar Stefánsson hefur taflmennsku á þremur alþjóðlegum mótum í Serbíu. Fyrsta mótið hefst 17. júlí. Fyrsta mótið á Chess-Results.

- Auglýsing -