Heimsmeistarinn þurfti að hafa fyrir að leggja Esipenko að velli. Mynd: Heimasíða mótsins.

Fimmtu umferð Heimsbikarmótsins í skák lauk í gær. Magnús Carlsen þurfti heldur betur að hafa fyrir hlutunum gegn Rússanum Andrey Esipenko (2716). Þurfti til þess að þrjár framlengingar eftir Rússinn, sem er félagsmaður í SSON, jafnaði metin í seinna atskákeinvígnu. Eitthvað sem Carlsen leyfir ekki oft. Heimsmeistarinn vann svo hraðskákeinvígið 2-0.

Það er áhugavert að MC er eini skákmaðurinn sem var meðal átta stigahæstu keppenda mótsins sem er ekki fallinn úr leik. Karjakin er næststigahæstur  en var nr. 10 í rásröð keppenda.

Úrslit 5. umferðar

  • Carlsen-Esipenko 5-3
  • Shankland-Svidler 1½-½
  • Fedoseev-Ivic 3-1
  • Durarbayli-Vidit ½-1½
  • Grischuk-Duda 1½-2½
  • Martirosyan-Tabatabei 1½-2½
  • MVL-Karjakin 2½-3½
  • Piorun-Bacrot 2-4

Fimmta umferð (16 manna úrslit) hefst í dag.

Átta manna úrslitum Heimsbikarmóts kvenna lauk í gær.

  • Goryachkina-Saduakassova 1½-½
  • Lagno-Tan Zhongyi ½-1½
  • Kosteniuk-Gunina 2-0
  • Anna Muzychuk-Dzagnidze 3-1

Frídagur er í dag en undanúrslit hefjast á morgun.

- Auglýsing -