Vignir tapaði fyrir serbneska stórmeistaranum Branko Damljanovic í gær. Mynd: SMP

Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2359), teflir á sínu öðru alþjóðlegu móti í Arandjelovac í Serbíu.

Tvær umferðir voru tefldar í gær Þá tefldi Vignir við tvo stigahæstu keppendur mótsins. Hann tapaði báðum. Annars vegar fyrir serbneska stórmeistaranum Branko Damljanovic og hins vegar fyrir bandaríska alþjóðlega meistarann Raven Stuart (2500). Vignir hefur 3 vinninga og er í 6.-8. sæti.

Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Þá teflir Vignir við rússneska alþjóðlega meistarann, með stórmeistarastyrkleikann, Rússann Semyon Lomasov (2525).

Vignir teflir í þremur 10 manna lokuðum flokkum í Serbíu. Meðalstigin í öðru mótinu, sem nú er í gangi, eru 2425 skákstig. Vignir er næststigalægstur keppenda.

Czech Open er gangi í Pardubice í Tékklandi. Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2517) og Guðmundur Kjartansson (2496) eru meðal keppenda.

Sjötta umferð fór fram í gær. Hannes tapaði fyrir tékkneska FIDE-meistaranum Richard Mladlek (2291) en Gummi vann pólsku skákkonuna Zuzanna Adamczyk (1921). Hannes hefur 4 vinninga en Gummi hefur 3 vinninga.

149 keppendur taka þátt í efsta flokki Czech Open og þar af eru 15 stórmeistarar. Hannes er áttundi í stigaröð keppenda en Guðmundur sá ellefti.

FIDE-meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2317) tekur þátt í alþjóðlegu móti í Árósum í Danmörku.

Í gær fóru fram tvær umferðir og tapaði Hilmir báðum skákunum. Vignir hefur 2 vinninga eftir 4 umferðir.

Átján keppendur taka þátt í mótinu og þar á meðal fjórir alþjóðlegir meistarar. Hilmir er fimmti í stigaröð keppenda.

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2516) tekur þátt í Þýskalandsmóti öldunga (50+) sem fram fer í 23.-31. júlí í Magdeburg.

Henrik gerði jafntefli í 6. umferð. Hann er í 1-3. sæti með 5 vinninga.

68 keppendur taka þátt. Henrik er langstigahæstur keppenda.

- Auglýsing -