Skákdrottningin Alexandra Kosteniuk (2472) vann glæsilegan sigur á Heimsbikarmóti kvenna sem lauk í gær. Í úrslitum lagði hún Aleksöndru Goryachkinu (2596).
Kosteniuk var í raun í ótrúlegu formi á Heimsbikarmótinu og flaug upp um heil 10 sæti á heimslista kvenna og hagnaðist um 42 elóstig á mótinu.

Ótrúlegar vikur hjá Kosteniuk en hún vann sér inn elóstig í nánast öllum skákunum enda fékk hún 10 vinninga af 12 í kappskákunum!
Kosteniuk skaut sér upp á stjörnuhimininn með því að vinna sigur á Heimsmeistaramóti kvenna árið 2008 og þessi sigur kærkominn viðbót við glæsilegan feril Kosteniuk.
Fyrri skákin var lykilskákin í einvíginu við Goryachkinu. Eftir miklar flækjur náði Kosteniuk að kreysta fram leikþröng í endataflinu hrókur gegn biskup þar sem kóngur Goryachkinu stóð ekki vel.
Í seinni skákinni hafði Kosteniuk hvítt og lenti í raun ekki í teljandi vandræðum og samdi loks um jafntefli með unnið tafl, líklegast hvíldinni fegin og vildi fagna titlinum frekar en að kreysta drottningarendatafl.
Truly impressive! #FIDEWorldCup #womeninchess
Photo by Anastasiia Korolkova pic.twitter.com/OC4jADMaqw
— Chessify (@ChessifyMe) August 3, 2021
Viðtal við skákdrottninguna


















