Tveir skákmenn leiða áskorendaflokk Skákþings Íslands eftir þrjár umferðir með fullu húsi. Þetta eru þeir Símon Þórhallsson og Guðni Stefán Pétursson. Þeir áttu góðan dag og unnu sínar skákir en tvöföld umferð var tefld í dag. Reykjavíkurmeistarinn fyrrverandi Stefán Bergsson hefur svo tvo og hálfan vinning ásamt stigahæsta keppandanum og alþjóðlega meistaranum Einari Hjalta Jenssyni.

Úrslit voru nokkurn veginn eftir bókinni í 2. umferð en þó unnu Guðni Stefán og Jóhann Ragnarsson góða sigri á stigahærri mönnum. Guðrún Fanney Briem náði mjög sterku jafntefli!


Símon vann góðan sigur með svörtu gegn kvenstórmeistaranum Lenku Ptacnikovu í þriðju umferðinni en Guðni lagði Arena stórmeistarann Hrannar Baldursson að velli. Hart var barist á næstu borðum og óvæntur sigur datt á 8. borði þar sem hinn ungi Sigurður Páll Guðnýjarson lagði að velli hina margreyndu landsliðskonu, Jóhönnu Björgu Jóhannsdóttur.

Staða efstu keppenda:

Fjórða umferð fer fram á morgun, mánudag, og hefst klukkan 18:00
Vegna Covid-19 hafa verið settar sérstakar reglur ef til þess kemur að ekki sé hægt að halda mótið samkvæmt dagskrá.
- Ef sex umferðum eða fleiri er lokið gildir staðan á þeim punkti sem lokastaða
- Ef færri en sex umferðum er lokið verður reynt að klára mótið við fyrsta tækifæri – þó aldrei með minna en vikufyrirvara.
- Ef keppendur geta ekki teflt vegna veikinda/sóttkvíar – verður ekki hægt að fresta skákum.
- Heimasíða Skákþings Íslands
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (væntanlegar)
- Skákir mótsins

















