Kviku Reykjavíkurskákmótið sem jafnframt er Evrópumót einstaklinga hefst í dag klukkan 15:00!
Í gær, miðvikudag komu flestir keppendur til landsins og jafnframt var unnið hörðum höndum við að gera keppnissali klára og gera allt klárt fyrir netútsendingar.

Mjög óformleg keppendamóttaka fór fram og var þar meðal annars dregið um liti á fyrsta borði. Stigahæsti keppandinn, Gawain Jones dró þar hvítt peð með aðstoð dóttur sinnar og því munu allir keppendur með oddatölu í byrjunarröðinni stýra hvítu mönnunum á morgun.

Í mörg horn er að líta þegar keppnissalur er settur upp en íslensk skákhreyfing er farin að búa að reyndum og góðum hópi fólks sem vinnur verkin vel og hratt!





Deginum í gær lauk með tæknifundi þar sem yfirskákstjóri, sóttvarnarfulltrúi og aðalskippuleggjandi fóru yfir málin.

Keppendur skiluðu sér nokkuð vel í gær og búast má við að parað verði um 12:30 í dag í fyrstu umferðina.
Mótið verður svo sett laust fyrir klukkan 15:00 og munu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Alexandra Briem frá borginni aðstoða Gunnar Björnsson við setningu mótsins.
Áhorfendur geta ekki gengið um keppnissali sökum sóttvarnarreglna en eru velkomnir í skýringarsalinn gamla og góða þar sem Ivan Sokolov mun verða með skákskýringar allt mótið ásamt góðum gestum. Við skákskýringasalinn er einnig sýning tileinkuð Bobby Fischer

Heimasíða mótsins
Mótið á Chess-results
Myndapakki frá uppsetningardegi
















