Baráttan um Íslandsmeistaratitil skákfélaga virðist vera að snúast upp í einvígi á Taflfélags Reykjavíkur og Taflfélag Garðabæjar sem vinna allar viðureignir nema gegn öðrum þar sem niðurstaðan varð jafntefli.
TR vann í kvöld öruggan, 6-2, sigur á Skákdeild Breiðabliks í fjórðu umferð úrvalsdeildar Íslandsmóts skákfélaga. Á sama tíma vann Taflfélag Garðabæjar sannfærandi sigur á Íslandmeisturum Víkingaklúbbsins.

Baráttan um Íslandsmeistaratitilinn virðist vera á milli TR og TG sem virðast hafa töluverða yfirburði. Viðureign Skákfélags Akureyrar og Skákdeildar Fjölnis lauk með jafntefli.
Einstaklingsúrslit 4. umferðar
Staðan
Veitt eru 2 stig fyrir sigur í viðureign en eitt fyrir jafntefli.
- TR 7 stig (21½ v.)
- TG 7 stig (21 v.)
- Fjölnir 4 stig (16½ v.)
- Víkingaklúbburinn 3 stig (13 v.)
- Breiðblik 2 stig (10½ v.)
- SA 1 stig (13½ v.)
Í öðrum deildum en úrvalsdeild eru búnar þrjár umferðir.
1. deild

B-sveit TR og sveit Taflfélags Vestmannaeyja eru efstar með 5 stig. Skákdeild KR og b-sveit SA hafa 4 stig. .
2. deild
Skákgengið, b-sveit Breiðabliks eru efstar með 6 stig. C-sveit TR er í þriðja sæti með 4 stig.
3. deild
C-sveit SA og d-sveit TR eru efstar með fullt hús stiga. Vinaskákfélagið og b-sveit TV hafa 4 stig.
4. deild
E-sveit TR og Skákfélag Sauðárkróks eru efst með fullt hús stiga.
















