TR leiðir með hálfum vinningi í baráttuni um Íslandsmeistaratitlinn gegnTG.

Baráttan um Íslandsmeistaratitil skákfélaga virðist vera að snúast upp í einvígi á Taflfélags Reykjavíkur og Taflfélag Garðabæjar sem vinna allar viðureignir nema gegn öðrum þar sem niðurstaðan varð jafntefli.

TR vann í kvöld öruggan, 6-2, sigur á Skákdeild Breiðabliks í fjórðu umferð úrvalsdeildar Íslandsmóts skákfélaga. Á sama tíma vann Taflfélag Garðabæjar sannfærandi sigur á Íslandmeisturum Víkingaklúbbsins.

Titilvörn Víkinganna Jóhanns og Björns virðist vera snúin. Jóhann vann þó Hjörvar í kvöld.

Baráttan um Íslandsmeistaratitilinn virðist vera á milli TR og TG sem virðast hafa töluverða yfirburði. Viðureign Skákfélags Akureyrar og Skákdeildar Fjölnis lauk með jafntefli.

Einstaklingsúrslit 4. umferðar

Staðan

Veitt eru 2 stig fyrir sigur í viðureign en eitt fyrir jafntefli. 

  1. TR 7 stig (21½ v.)
  2. TG 7 stig (21 v.)
  3. Fjölnir 4 stig (16½ v.)
  4. Víkingaklúbburinn 3 stig (13 v.)
  5. Breiðblik 2 stig (10½ v.)
  6. SA 1 stig (13½ v.)

Mótstaflan

Í öðrum deildum en úrvalsdeild eru búnar þrjár umferðir.

1. deild

Eyjamenn hafa byrjað vel í 1. deild

B-sveit TR og sveit Taflfélags Vestmannaeyja eru efstar með 5 stig. Skákdeild KR og b-sveit SA hafa 4 stig. .

Mótstaflan 

2. deild 

Skákgengið, b-sveit Breiðabliks eru efstar með 6 stig. C-sveit TR er í þriðja sæti með 4 stig.

Mótstaflan

3. deild

C-sveit SA og d-sveit TR eru efstar með fullt hús stiga. Vinaskákfélagið og b-sveit TV hafa 4 stig.

Mótstaflan

4. deild

E-sveit TR og Skákfélag Sauðárkróks eru efst með fullt hús stiga.

Mótstaflan

- Auglýsing -