Undirbúningurinn fyrir EM landsliða í skák, sem fram fer 12.-21. nóvember nk. í Slóveníu stendur nú sem hæst. Í dag mætir kvennalandsliðið sveit Kosta Ríka í netkeppni. Lið Íslands er það sama og á EM að því undanskildu að Guðlaug Þorsteinsdóttir tekur sæti Hallgerðar Helgu sem hafði ekki tök á því að tefla í dag þar sem hún teflir á móti í Sviss þar sem hún býr.

Taflmennskan hefst kl. 15 í dag og teflar eru tvær atskákir.  Hægt er að fylgjast með viðureigninni á Tornelo.

Í gær stóð kvennalandsliðið fyrir göngutúr og mættu nokkrir úr liðinu í opna flokknum með.

Hannes, Ingvar (liðsstjóri, Lenka, Liss, Jóhanna og Hrund. Guðmundur Kjartansson tók myndina.

Liðin hafa bæði verið að hitta íþróttasálfræðing og hafa verið með æfingar á netinu auk þess að hittast.

 

- Auglýsing -