Undirbúningurinn fyrir EM landsliða í skák, sem fram fer 12.-21. nóvember nk. í Slóveníu stendur nú sem hæst. Í dag mætir kvennalandsliðið sveit Kosta Ríka í netkeppni. Lið Íslands er það sama og á EM að því undanskildu að Guðlaug Þorsteinsdóttir tekur sæti Hallgerðar Helgu sem hafði ekki tök á því að tefla í dag þar sem hún teflir á móti í Sviss þar sem hún býr.
Taflmennskan hefst kl. 15 í dag og teflar eru tvær atskákir. Hægt er að fylgjast með viðureigninni á Tornelo.
Í gær stóð kvennalandsliðið fyrir göngutúr og mættu nokkrir úr liðinu í opna flokknum með.

Liðin hafa bæði verið að hitta íþróttasálfræðing og hafa verið með æfingar á netinu auk þess að hittast.
- Auglýsing -
















