Vetrarstarf ÁSA hefur farið vel á stað eftir rúmlega heils árs hlé vegna farsóttarinnar og starfsemin og komast í góðan gír á ný að “loknu” kóvíd.

Í millitíðinni hélt skákhópur KORPÚLFA að Borgum uppi skákmótum fyrir eldri skákmenn að nokkru og eins RIDDARINN yfir sumarmánuðina þó veiran skæða setti stundum strik í reikninginn.

Mæting hefur farið vaxandi, þó margra sé enn saknað úr hópnum, sumra fyrir fullt og allt, sem fallið hafa frá. Yfir 40 félagar hafa horfið á braut á sl. 15 árum en yngri skákmenn fylla að nokkru í þau stóru skörð. Nú stefnir í grímulaust og græskulaust gaman við skákborðið að öllu forfallalausu þar sem skákgammurinn verður látin geysa allt til vors.

Finnur heiðraður fyrir frábært starf.

Sú breyting hefur orðið að Finnur Finnsson hefur dregið sig úr forystusveitinni eftir 15 ára gott starf, en er þó enn virkur, og Guðfinnur Kjartansson tekið við af honum sem gjaldkeri og skákstjóri ásamt Garðari Guðmundssyni, formanni.

Hart er jafnan barist og varist á skákdögum klúbbsins sem eru á þriðjudögum kl.13-17, þar sem tefldar eru 10 umferðamót með 10 mínútna umhugsunartíma á skákina. Svo mætir um helmingur hópsins til tafls hjá Korpúlfum að Borgum á fimmtudögum á sama tíma, hvort heldur þeir eru Ásar eða Riddarar inn við beinið

Hinir valinkunnu kappar, þeir Bragi Halldórsson og Björgvin Viglundsson, hafa verið einna sigursælastir og unnið flest mótin það sem af er, en þeir Ólafur Kristjánsson og Gunnar Skarphéðinsson sitt mótið hvor og Júlíus Friðjónsson nú það síðasta, þar sem hann skákaði öllum og vann með yfirburðum í harðri keppni við valinkunna meistara og minni spámenn.

 

Síðastliðinn þriðjudag var óvenju góð mæting, 32 keppendur mættir til keppni í vöntun annars betra. Lengi lifir í gömlum glæðum og skákin gagnast vel þeim eldri þegar hægist um, því félagsskapurinn, keppnin, spennan og ekki síst fegurðin sem henni fylgir gleður lífið og er góð afþreying að sama skapi.

Þá var meðf. hópmynd tekin enda farið að styttast í 25 ára afmæli klúbbsins.

Haustmeistaramót ÁSA var háð fyrir hálfum mánuði. Þá varð Bragi Halldórsson hlutskarpastur og hampaði bikarnum. Keppnin var tvísýn alveg fram til þess síðasta um öll 30 sætin og ekkert gefið eftir fyrr en í fulla hnefana eða fall á tíma.

Enginn er annars bróðir í leik og því hart barist að jafnaði þó í góðu sé!

Hér fylgja með tvær myndskreyttar mótatöflur sem segja sína sögu um fjörug og spennandi mót og viðureignir okkar gamlingjanna.

EEss

 

- Auglýsing -