Evrópumót landsliða hefst á morgun í Slóveníu. Ísland sendir lið til leiks í opnum flokki og í kvennaflokki. Þetta er fyrsta landsliðsverkefni „í raunheimum“ eftir að covid-faraldurinn hófst. Tefldar verða alls níu umferðir og einn frídagur verður eftir fimmtu umferð.

Í opnum flokki eru 39 lið skráð til leiks. Íslenska liðið er númer 27 í styrkleikaröðinni. Rússar eru eins og yfirleitt sterkastir „á pappír“ og eru efstir í styrkleikaröð. Þeir eru skiljanlega án Ian Nepomniachtchi sem teflir heimsmeistaraeinvígi við Magnus Carlsen eftir um 2 vikur. Engu að síður eru Rússarnir mjög sterkir sem fyrr með þá Grischuk, Esipenko, Dubov, Artemiev og Alekseenko í sínu liði.

Tvö önnur lið ná meðalstigum yfir 2700 elóstigum. Annarsvegar er það Azerbaijan með þá Mamedyarov og Radjabov og hinsvegar Frakkar en þeir geta nú teflt fram Alireza Firouzja ásamt MVL og verður spennandi að fylgjast með þeim.

Íslenska liðið er eins og áður sagði í 27. sæti í styrkleikaröðinni og íslenska liðið skipa:

  1. GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2574)
  2. GM Hannes Hlífar Stefánsson (2519)
  3. GM Jóhann Hjartarson (2483)
  4. GM Helgi Áss Grétarsson (2476)
  5. GM Guðmundur Kjartansson (2443)

Liðsstjóri liðsins er Margeir Pétursson.

Miðað við styrkleikaröð mætir íslenska liðið því spænska í fyrstu umferð. Spánverjar skarta Alexei Shirov og David Anton Guijarro á efstu borðum ásamt 2600+ stórmeisturum. Verðugt verkefni þar á ferðinni!

Í kvennaflokki er 31 lið skráð til leiks. Rússar eru einnig stigahæstir í kvennaflokki og íslenska liðið er númer 29 í styrkleikaröðinni. Íslenska liðið skipa:

  1. WGM Lenka Ptacnikova 2200
  2. WFM Hallgerður Helga Þorsteínsdóttir 2010
  3. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 1952
  4. WIM Lisseth Acevdeo Mendez 1803
  5. Hrund Hauksdóttir 1731

Margeir Pétursson er einnig skráður liðsstjóri kvennaliðsins á mótsstað þar sem Ingvar Þór Jóhannesson komst ekki út af persónulegum ástæðum. Ingvar verður samt kvennaliðinu innan handar gegnum fjarfundarbúnað.

Eins og staðan er núna er líklegt að kvennaliðið mæti því hollenska sem er nokkuð þétt lið og reynslumikið með stórmeistarinn Zhaoqin Peng á fyrsta borði.

Umferðir hefjast klukkan 14:00 að íslenskum tíma

Opinn flokkur á Chess-results

Kvennaflokkur á Chess-results

- Auglýsing -