Það var einvalalið herramanna og höfðingja sem var mætt til leiks í Faxafen 12 að kvöldi föstudags til að hefja keppni um titilinn Íslandsmeistari öldunga (65+) árið 2021.

Allt saman höfðingjar hér!

9 keppendur hófu keppni og því þurfti einn að sitja hjá. Það kom í hlut Jóns Steins Elíassonar að fá skottu og það fleytti honum ansi langt því eins og fyrirsögnin gefur til kynna var mikið um jafntefli!

Á efsta borði tefldi Bragi Halldórsson þungt gegn Áskeli Erni Kárasyni og virtist hafa betra endatafl með hrók og tvö peð gegn tveimur léttum mönnum. Á einhverjum tímapunkti stóð Bragi til vinnings en Áskell slapp með skrekkinn í þetta skiptið.

Róbert skákstjóri með fyrsta leikinn

Björgvin Víglundsson og Haraldur Haraldsson tefldu baráttuskák á öðru borði en niðurstaðan varð sú sama, friðarpípan var tekin upp í lokin.

Það var einungis Þór Valtýsson sem náði að leggja sinn andstæðing en London systemið góða með biskupinn á f4 gaf sig vel og Þór lagði að velli Júlíus Friðjónsson.

Loks var jafntefli hjá þeim Ólafi Kristjánssyni og Páli G Jónssyni.

Skákstjórn er í höndum donsins sjálfs, Róberts Lagerman. Borð voru að sjálfsögðu fallega stillt upp og piparkökur klárar á kantinum!

Mótið á chess-results

- Auglýsing -