Mótherji dagsins í opnum flokki er lið Finnlands. Kvennaliðið situr hjá í umferð dagsins.

Finnar eru 35. stigahæsta sveitin. Íslendingar eru mun stigahærri á öllum borðum og hægt að setja skýlausa kröfu um sigur í viðureigninni!

Friðrik Jensen Karlsson hefur tekið saman líkur á vinningum í íslenska liðsins. Líklegustu úrslitin eiga að vera 3-1 og 2,5-1,5 næst líklegast.

Beinar útsendingar íslenska liðsins í opnum flokki

Umferðir hefjast klukkan 14:00 að íslenskum tíma

Opinn flokkur á Chess-results

Kvennaflokkur á Chess-results

Skákvarpið hefst milli 15 og 15:30

- Auglýsing -