Íslenska liðið í opnum flokki vann kærkominn sigur í 5. umferðinni þegar þeir lögðu Walesverja 4-0. Kvennaliðið tapaði óþarflega stórt fyrir Slóveníu 2 með 0,5 vinningum gegn 3,5.

Hjörvar fékk aftur hvítt og aftur andstæðing sem beitti Benoni-vörn. Má segja að Hjörvar hafi búið að stúderingum gærdagsins og beitti aftur Taimanov afbrigðinu sem gafst vel í gær. Það sama var uppi á teningnum í dag og Hjörvar vann nokkuð auðveldlega.
Skák Hannesar í dag var nokkuð „hrein“ og áreynslulaus ef svo má að orði komast. Hannes þurfti aðeins að hafa fyrir úrvinnslunni en þessi skák var alltaf að fara að enda með sigri Hannesar.
Á þriðja vann Helgi einnig nokkuð auðveldlega en þar endaði kóngsindversk vörn andstæðings hans einnig í Benoni-strúktúr. Fín skák hjá Helga.
Guðmundur Kjartansson hélt áfram að hala inn vinningum á 4. borði. Dagurinn hefði reyndar getað verið styttri ef riddarinn sem fór á d4 í 26. leik hefði farið þangað í 13. leik sem virðist vinna mann bótalaust. Kannski hefur Gummi viljað lengri skák og ekki viljað láta „Veðurvatnið“ tapa í 15 leikjum tvo daga í röð!


Viðureign dagsins hjá kvennaliðinu gekk ekki jafn vel og í gær en úrslitin kannski óþarflega stórt tap miðað við gang mála.
Lenka lenti í frumlegri sókn frá slóvenska fyrsta borðinu. Í erfiðri stöðu lék Lenka svo af sér og tapaði fyrr en efni voru til.
Hallgerður hélt lengi vel von í viðureigninni enda hafði hún töluvert meira rými þó að andstæðingur hennar hefði trausta stöðu. Hvítur náði að verjast vel og loks varð jafntefli niðurstaðan.
Andstæðingur Jóhönnu tefldi í fyrsta sinn …c5 afbrigðið í Tarrasch en hafði áður teflt …dxe4 og …Rf6 þar sem Jóhanna var vel undirbúin. Byrjunin var líklega í lagi en Bd3-e2 var óþarf leiktap. Peðaframrásin f3 var hinsvegar bara afleikur og þá var skákin búin.
Hrund tefldi fínt framan af eins og í fyrri skák hennar á mótinu. Aftur fjaraði undan þegar leið á, Hrund missti af klárum vinning með …Hd8 eftir drápið á d5 og svo vænlegum leiðum. Staðan var enn betri þegar röng biskupsfórn færði hvítum skákina.
Kvennaliðið fær strax tækifæri á að koma fram hefndum en við mætum aðalliði Slóveníu í 6. umferðinni á fimmtudaginn. Karlarnir fá lið Svia sem við eigum alltaf að eiga séns í!
Umferðir hefjast klukkan 14:00 að íslenskum tíma en minnum á að miðvikudagurinn er fridagur!
Skákvarpið má finna hér og hefjast útsendingar 15:30-16:00
















