Gummi í settinu eftir ská

Guðmundur Kjartansson (2434) vann yngsta stórmeistara heims, Praggnanandhaa (2532), í áttundu og næstsíðustu umferð Riga-mótsins sem fram fór í gær. Gummi hefur nú unnið fjórar skákir í röð! Skákina í gær má finna hér að neðan. Guðmundur hefur 6 vinninga og er í 7.-20. sæti. Í lokaumferðinni, sem er nýhafin, teflir Gummi við ísraelska stóreistarann Ilia Smirin (2602).

Helgi Áss Grétarsson (2480) vann sína skák og hefur 4 vinninga.

- Auglýsing -