Áskell Örn Kárason (2217) hefur raunhæfa möguleika á því að verða Evrópumeistari öldunga 65 ára og eldri en teflt er í Drammen í Noregi. Þegar aðeins einni umferð er ólokið er Áskell efstur ásamt þremur öðrum.
í gær vann hann sænska skákmanninn Gunnar Hedin (2179) nokkuð sannfærandi. Sigurskákina má finna hér að neðan. Verkefnið í dag er erfitt því Áskell teflir við rússneska stórmeistarann Vladislav Vototnikov (2445) sem er stigahæstur keppenda.
Jóhannes Björn Lúðvíksson (2024), sem teflir einnig í flokki 65+, vann í gær og hefur 4,5 vinninga.
Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (1715) tapaði í gær en hún teflir í flokki kvenna 50+
Lokaumferðin hefst kl. 13:15.
- Auglýsing -















