Vignir Vatnar að tafli á Íslandsmóti skákfélaga. Mynd: Ómar Óskarsson.

Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2465) tekur þátt í alþjóðlegu áfangamóti sem hófst í gær í Dyflinni á Írlandi dagana 2.-6. janúar.  Um er að ræða svokallað túrbó-mót þar sem tvær umferðir eru tefldar á dag nema í gær því þá var „aðeins“ ein umferð tefld.

Vignir vann írska alþjóðlega meistarann Sam E. Collins (2456) í skák gærdagsins.

Í dag eru tefldar tvær umferðir.  Í fyrri umferð dagsins teflir Viggi við írska FIDE-meistarann Tom O´Gorman (2350) og í þeirri síðari mætir hann enska stórmeistaranum Keith Arkell (2370).

Mótið fer fram 2.-6. janúar. Tíu keppendur taka þátt og tefla allir við alla. Til að ná stórmeistaraáfanga þarf 7 vinninga af 9 mögulegum. Vignir er næststigahæstur keppenda. Umferðir hefjast kl. 9:30 og 14:30.

- Auglýsing -