Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2465) tefldi tvær skákir á áfangamóti í Dyflinni á Írlandi í gær. Í fyrri skákinni gerði hann átakalítið jafntefli við írska FIDE-meistarann Tom O´Gorman (2350). Í þeirri síðari sýndi hann mikla og góða tækni þegar hann lagði enska stórmeistaranum Keith Arkell (2370) að velli. Vignir er efstur að loknum þremur umferðum með 2½ vinning.
Í dag eru tefldar tvær umferðir. Í fyrri umferð dagsins teflir Viggi við írska FIDE-meistarann Tarun Kanyamarala (2398) og í þeirri síðari mætir hann skoska stórmeistaranum Paul Motwani (2432).
Mótið fer fram 2.-6. janúar. Tíu keppendur taka þátt og tefla allir við alla. Meðalstig mótsins eru 2368 skákstig. Til að ná stórmeistaraáfanga þarf 7 vinninga af 9 mögulegum. Vignir er næststigahæstur keppenda. Umferðir hefjast kl. 9:30 og 14:30.















