Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2465) tefldi tvær skákir á „túrbó“-áfangamóti í Dyflinni á Írlandi í gær. Hann vann þær báðar. Vignir er efstur á mótinu. Hefur 4½ vinning að loknum 5 umferðum.
Í fyrri skák gærdagsins vann hann írska FIDE-meistarann Tarun Kanyamarala (2398). Vignir fékk vonda stöðu. Tefldi hratt og örugglega og svo fór að andstæðingurinn lék af sér skiptamun og skákinni í tímapressu eftir að Vignir hafði jafnað taflið.
Seinni skák dagsins var á móti skoska stórmeistaranum Paul Motwani (2432). Þar sýndi Vignir mikla seiglu þegar hann tefldi jafnteflislega skák í botn. Setti tímapressu og sífelld ný vandamál fyrir Motwani, sem er fyrrum heimsmeistari ungmenna (1978), þar til Skotinn stóðst ekki pressuna. Verulega vel tefld skák að hálfu Vignis.
Í dag eru tefldar tvær umferðir. Í fyrri umferð dagsins teflir Viggi við írska alþjóðlega meistarann Conor E Murpy (2432) og í þeirri síðari mætir hann stigahæsta keppenda mótsins, spænska stórmeistaranum, Jose Conzalez Garcia (2466)
Mótið fer fram 2.-6. janúar. Tíu keppendur taka þátt og tefla allir við alla. Meðalstig mótsins eru 2368 skákstig. Til að ná stórmeistaraáfanga þarf 7 vinninga af 9 mögulegum. Vignir er næststigahæstur keppenda. Umferðir hefjast kl. 9:30 og 14:30.















