Vignir Vatnar að tafli á Íslandsmóti skákfélaga. Mynd: Ómar Óskarsson.

Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2465) krækti í morgun í sinn fyrsta  fyrsta stórmeistaraáfanga með frábærri frammistöðu í Dyflinni á Írlandi. Nokkuð skemmtileg tilviljun (?) að fyrsti áfanginn kom einnig í hús á Írlandi!

Vignir lagði írska skákmeistarann Peter Cafolla (1976) örugglega að velli í morgun. Þar með náði Vignir tilskyldum 7 vinningum sem til þurfti í áfangann. Og það þótt enn sé einni umferð ólokið!

Til að verða stórmeistari þarf 3 slíka áfanga og einnig að ná 2500 skákstigum. Vignir er kominn með 2486 skákstig eftir umferðirnar átta.

Lokaumferðin hófst núna kl. 14. Þá teflir Vignir írska alþjóðlega meistaranum David Fitzsimons (2337).

Mótið fer fram 2.-6. janúar. Tíu keppendur taka þátt og tefla allir við alla. Meðalstig mótsins eru 2368 skákstig. Til að ná stórmeistaraáfanga þarf 7 vinninga af 9 mögulegum. Vignir er næststigahæstur keppenda.

- Auglýsing -