Vignir Vatnar Stefánsson virðist vera kominn í gang í Serbíu en hann vann sína fyrstu skák á mótinu í dag. Reyndar fékk hann vinning í fyrri skák sinni líka en því miður mætti andstæðingur hans ekki til leiks í skákina. Indverjinn P.D.S. Girinath (2365) virtist einmitt þjást af PDS ef við bætum D við, PDSD (post dramatic stress disorder). Indverjinn hefur ekkert getað á mótinu og var aðeins með 1 vinning fyrir skákina. Hann mætti því ekki útaf Covid smiti eða einhverju slíku. Óljóst er hvort að Vignir nái að tefla skákina við hann eða ekki en því miður er svona framkoma nánast óboðleg í lokuðum flokkum þar sem áfangasénsar eyðileggjast út af ótefldum skákum.
Í seinni skák dagsins lagði Vignir alþjóðlega meistarann Evgeny Kardashevskiy með svörtu mönnunum. Vignir beitti Leningrad afbrigði hollenskrar varnar. Úr varð dýnamísk barátta þar sem Vignir hafði betur gegn Rússanum unga.
Einhvern tímann komst greinarhöfundur að þeirri niðurstöðu að Leningrad afbrigðið hentaði vel gegn rússneskum skákmönnum en sjálfur tefldi ég oft Leningrad. Skák Vignis allavega styður þá verulega óvísindalegu kenningu!
Vignir hefur 4 vinninga af 6 en þó eina óteflda skák. Vignir sagðist vera staðráðinn í að „vinna rest“ í stuttu spjalli við Skak.is.
Því miður virðist Alexander Oliver hafa misst flugið í IM-flokknum eftir glæsilega byrjun. Hann tapaði báðum skákum sínum í dag. Hér eru þær saman í spilara.
Hilmir Freyr Heimisson vann fyrri skák sína í dag gegn Lev Zverev en makedónski landsliðsmaðurinn og Fjölnismaðurinn Nikola Nikolovski veitti samherja sínum engin grið og vann hann með svörtu í seinni skák dagsins.
Eitthvað virðist vanta upp á skákina hjá Hilmi gegn Zverev. Þetta er í annað skiptið sem þetta gerist á mótinu. Skak.is biðlar til ungra skákmanna að vanda skrift við ritun skákskriftar eyðublaða!
Þrjár umferðir eru eftir og svo hefst einn flokkur til viðbótar að loknu móti hjá strákunum.
GM Flokkur Vignis á Chess-Results
IM Flokkur Hilmis og Alexanders á Chess-Results
















