Rimaskóli vann þrefaldan öruggan sigur á Íslandsmóti grunnskólasveita – stúlknaflokki sem fram fór í laugardaginn!
1.-2. bekkur
Aðeins tvær sveitir tóku þátt Rimaskóli og Álfhólsskóli. Rimaskóli vann öruggan sigur og tók gullið en Álfhólsskóli silfrið.
Lið Íslandsmeistara Rimaskóla skipuðu: Aðalheiður Birna Bragadóttir, Bríet Alexandra Einarsdóttir, Jóhanna Lilja Vignisdóttir og Margrét Einarsdottir
3.-5. bekkur
Góð þátttaka í flokknum en 9 sveitir tóku þátt. Rimaskóli vann sannfærandi sigur. Hlaut 19½ vinning af 20 mögulegum. C- og b-sveitr Rimaskóla tóku silfur og brons.
Lið Íslandsmeistara Rimaskóla skipuðu: Hrafndís Karen Óskarsdóttir, Tara Líf Ingadóttir, Emilía Embla B. Berglindardóttir og Sigrún Tara Sigurðardóttir
6.-10. bekkur
Fjórar sveitir tóku þátt. Rimaskóli vann öruggan sigur. Hörðuvallaskóli varð í öðru sæti og Vogaskóli í því þriðja.
Lið Íslandsmeistara Rimaskóla skipuðu Sóley Kría Helgadóttir, Nikola Klimaszweska, Laufey Björk Vignisdóttir, María Lena Óskarsdóttir, Heiðdís Diljá Hjartardóttir
Helgi Árnason og Jóhann Arnar Finnsson voru liðsstjórar Rimaskólasveitanna.













