Stórmeistarinn Jóhann Hjartarson (2470) hlaut 5 vinning í 9 umferðum á alþjóðlegu móti í Cattolica á Ítalíu. Hann endaði í 18.-29. sæti.
Illa gekk á laugardaginn en þá tapaði Jóhann báðum sínum skákum. Annars vegar fyrri rússneska stórmeistaranum Arseniy Nesterov (2522) og hins fyrir þýska FIDE-meistaranum Tom Frederic Woelk (2348).
Í gær kom hins vegar 1½ vinningur í hús. Sigur gegn Þjóðverjanum Robert Engel (2128) en jafntefli gegn Indverjanum Kulkarni Ojas (2236).
65 keppendur frá 20 löndum tóku þátt í mótinu og þar af voru 13 stórmeistarar. Jóhann var nr. 12 í stigaröð keppenda.
- Auglýsing -















