Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.
Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).
——-
Ekki stóð þátttökumetið frá þriðjudeginum 15. mars lengi; það var slegið strax á næsta móti 22. mars, þegar 34 settust að tafli. Þar á meðal voru einir fimm sigurvegarar fyrri móta og flestir þeirra tóku einnig þátt í baráttunni um fyrsta sætið að þessu sinni. Þeir fyrri sigurvegarar sem tóku minni þátt höfðu þó áhrif á toppbaráttuna. Þannig gerði t.d. Björgvin Ívarsson Schram jafntefli bæði við Ólaf og Gauta Pál. Það leiddi til þess að fyrir síðustu umferð var Magnús Pálmi Örnólfsson einn efstur með fullt hús en þeir Ólafur og Gauti voru með 3½ vinning. Svo fór að Gauti Páll lagði Magnús Pálma í líflegri skák í síðustu umferð.
Þeir Gauti og Ólafur urðu efstir og jafnir með 4½ vinning en Gauti aðeins hærri á stigum. Gauti Páll telst því sigurvegari mótsins. Hann fær úttektina hjá Skákbúðinni en einnig Haraldur Þórarinsson sem er ekki kominn með stig enn en var með frammistöðu upp á 1657, hvorki meira né minna.
Öll úrslit og stöðu mótsins má annars nálgast hér á chess-results.














