Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2450) hefur byrjað sérlega vel á EM einstaklinga í Terme Catez í Slóveníu. Hefur fullt hús ásamt sex öðrum keppendum eftir 3 umferðir.
Í gær vann hann tékkneska stóremeistarann Peter Michalik (2585). Hannes Hlífar Stefánsson (2520) vann slóvensku skákkonuna Zala Urh (2307) og hefur 2 vinninga.
Fjórða umferð fer fram í dag. Gummi teflir við hinn dansk-ættaða þýska stórmeistara Rasmus Svane (2637) en Hannes heldur sig við skákkonurnar. Í dag teflir hann við hina ísraelsku Michelle Katkov (2149).
Alls taka 317 skákmenn frá 40 löndum þátt í mótinu. Þar af eru 114 stórmeistarar. 20 efstu sætin gefa keppnisrétt á heimsbikarmótinu í skák á næsta ári. Hannes er nr. 94 í stigaröð keppenda en Guðmundur er nr. 133.














