Málþing um málefni skákhreyfingarinnar verður haldið laugardaginn 1. september nk. Málþingið verður haldið í Rimaskóla og hefst kl. 10.
Undirbúningshópur, skipaður af forsvarsmönnum margra stærri taflfélag landsins völdu fjögur umræðuefni fyrir málþingið. Þau eru:
- Landsliðs- og afreksmál
- Kvennaskák
- Barna- og unglingastarfsemi – (hvernig á að forðast brotfall).
- Landsbyggðin og skák í skólum – útbreiðslustarf
Dagskráin er sem hér segir:
- Á milli 10 og 12 – tveir umræðuhópar – niðurstaða kynnt
- Á milli 13 og 15 – tveir umræðuhópar – niðurstaða kynnt
- Á milli 15 og 17 – Íslandsmót skákfélaga – forsvarsmenn athugi hvort þeir geti komist að lausn.
Nánari tillögun á fundinum verður tilkynnt í næstu viku.
Undirbúningsnefnd málþingsins skipa: Gunnar Björnsson og Þorsteinn Stefánsson (SÍ), Kjartan Maack (TR), Pálmi R. Pétursson (Hugin), Helgi Árnason (Fjölni), Halldór Grétar Einarsson (Breiðabliki) og Áskell Örn Kárason (SA).
- Auglýsing -














