Bandaríska ungstirnið Hans Niemann er efstur ásamt Pólverjanum Lukasz Jarmula á Kviku Reykjavíkurskákmótinu sem fram fer í Hörpu. Vera Niemann í toppsætinu kemur svo sem ekki mikið á óvart þar sem hann er í 2. sæti á styrkleikalista mótsins. Pólverjinn er hinsvegar nokkuð óvænt með fullt hús þar sem hann er í 25. sæti á styrkleikalistanum. Jarmula lagði nokkuð óvænt að velli indverska stórmeistarann Abhijeet Gupta sem hefur tvisvar orðið hlutskarpastur á Reykjavíkurskákmótinu.
Stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson var nálægt því að slást í hóp með þeim Niemann og Jarmula en hann hafði gjörsamlega kolunnið tafl gegn öðru fyrrverandi sigurvegara, Baskaran Adhiban. Einhvern veginn fann Héðinn ekki réttu leiðina þrátt fyrir að nánast allur liðsafli andstæðingsins væri leppur og varð að sætta sig við jafntefli.
Fleiri Íslendingar hafa tvo og hálfan vinning og deila þriðja sætinu. Þar á meðal eru stórmeistararnir Hjörvar Steinn Grétarsson, Jóhann Hjartarson og Bragi Þorfinnsson ásamt áfangaveiðaranum Vigni Vatnari Stefánssyni. Fleiri eru í þessum hópi, þar á meðal hinn ungi Gunnar Erik Guðmundsson sem er að hækka um heil 36 elo stig eftir góða byrjun á mótinu.
Tvær umferðir fóru fram í dag en þetta er annar af tveimur dögum þar sem slíkt fyrirkomulag er á mótinu. Dana Reizniece-Ozola, framkvæmdastjóri alþjóðlega skáksambandsins setti seinni umferð dagsins með því að leika fyrsta leiknum á efsta borði.
- Auglýsing -















