Fimmta umferð Kviku Reykjavíkurskákmótsins hefst kl. 15 í dag í Hörpu. Margar áhugaverðar viðureignir enda hefur gengi íslensku keppendanna verið gott!
Um það bil helmingur skákanna er sýndur beint eða 57 skákir. Hægt er að nálgast þær t.d. á Chess24 og FollowChess.
Ingvar Þór Jóhannesson er með streymi sem hefst þegar liðið er á umferðina.
Jón L. Árnason verður með skákskýringar sem hefjast kl. 17.
Áhorfendur velkomnir í Hörpu til að fylgjast með veislunni!
Harpa Blitz verður í kvöld og hefst kl. 21. Öllum opið. Fyrirkomulag verður nánar kynnt í dag.

 

- Auglýsing -