Hollenski stórmeistarinn Max Warmerdam er nú einn efstur á Kviku Reykjavíkurskákmótinu eftir góðan sigur á móti Jóhanni Hjartarsyni í 7. umferðinni. Það var nóg að gera í Hörpu í dag þar sem tvær umferðir fóru fram.

Mads Andersen og Rameshbabu Pragganandhaa voru jafnir Jóhanni og Max fyrir umferðina en þeir gerðu stutt innbyrðis jafntefli. Þeir eru með 5,5 vinning, hálfum vinningi á eftir Max ásamt þeim Idani Pouya sem lagði Thomas Beerdsen, Matthieu Cornette sem lagði Brandon Clark.

Jóhann er því efstur Íslendinga ásamt afmælisbarninu Braga Þorfinnssyni.

Það stefnir í æsispennandi lokaumferðir en áttunda og næstsíðasta umferð fer fram klukkan 16:00 á morgun.

- Auglýsing -