Áttunda og næstsíðasta umferð Kviku Reykjavíkurskákmótsins hefst kl. 16 í dag. Hollenski stórmeistarinn Max Warmerdam (2599) er efstur með 6 vinninga. Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson (2465), Bragi Þorfinnsson (2419) og Hjörvar Steinn Grétarsson (2542) eru efstir íslensku keppendanna í 7.-28. sæti með 5 vinninga.
Indverska skákdrottningin Tania Sacdev (2392) hefur oft átt góð mót á Íslandi. Í gær vann hún Héðin Steingrímsson (2538) í lengstu skákumferðarinnar og í er í 2.-6. sæti. Hún mætir í dag danska stórmeistaranum Mads Andersen (2582)
Í umferð dagsins teflir Jóhann við indverska undrabarnið D Gukesh (2637), Bragi við bandaríska stórmeistarann Hans Niemann (2637) og Hjörvar við enska FIDE-meistarann Jonah Willow (2411).
Áhorfendur velkomnir í Hörpuna. Hægt er að fylgjast með helstu skákunum á stórum skjá. Skákskýringar í umsjón Hannesar Hlífars Stefánssonar hefjast kl. 18.
Um það bil helmingur skákanna er sýndur beint eða 57 skákir. Hægt er að nálgast þær t.d. á Chess24 og FollowChess.
Ingvar Þór Jóhannesson er með streymi sem hefst þegar liðið er á umferðina.
Streymi 5. umferðar
- Auglýsing -
















