Praggnanandhaa með sigurlaunin.

Vel heppnuðu Kviku Reyjavíkurskákmóti lauk í gær í Hörpu. 245 kepppendur frá 39 löndum tóku þátt. Indverski stórmeistarinn, Praggnanandhaa, vann sigur á mótinu. Hlaut 7½ vinning í 9 skákum. Lagði landa sinn Gukesh (2637) í lokaumferðinni eftir að hafa snúið töpuðu tafli sér í vil með laglegu riddarahoppi. Pawel Bartoszek, borgafulltrúi, afhendi verðlaunin ásamt Gunnari og Jóhönnu forseta og varaforseta SÍ.

Hjörvar og félagar sem enduðu í 2.-5. sæti.Hjörvar Steinn Grétarsson var í skiptu 2.-5. sæti með 7 vinninga. Lengi leit vel út að Hjörvar yrði einn sigurvegar mótsins en óvæntur sigur Pragaga breytti því.  Með honum í 2.-5. sæti urðu stórmeistararnir Max Warmerdam (2599), Hollandi, Mads Andersen (2582), Danmörku og Mishra Abhimanyu (2524), Bandaríkjunum, yngsti stórmeistari heims.

Þeir sem enduðu í 6.-10. sæti.

Jóhann Hjartarson (2465), Sigurbjörn Björnsson (2306), Hilmir Freyr Heimisson (2321), Vignir Vatnar Stefánsson (2501) urðu næstir Íslendinga með 6 vinninga.

Verðlaunahafar mótsins urðu sem hér segir

Aðalverðlaun

Röð  Titill Nafn Land Stig Vinn Verðl (evrur)
1 GM Praggnanandhaa R IND 2624 7.5 5000
2 GM Warmerdam Max NED 2599 7 1581
3 GM Andersen Mads DEN 2582 7 1206
4 GM Gretarsson Hjorvar Steinn ISL 2542 7 981
5 GM Mishra Abhimanyu USA 2524 7 881
6 GM Fier Alexandr BRA 2573 6.5 318
7 GM Niemann Hans Moke USA 2637 6.5 268
GM Gupta Abhijeet IND 2616 6.5 268
9 IM Larkin Vladyslav UKR 2424 6.5 268
10 IM Korley Kassa DEN 2400 6.5 268
11 GM Maze Sebastien FRA 2524 6.5
IM Clarke Brandon G I ENG 2436 6.5
13 IM Sarkar Justin USA 2314 6.5
14 IM Yoo Christopher Woojin USA 2532 6.5
15 GM Libiszewski Fabien FRA 2510 6.5

 

Öldungar (+65)

Goðsögnin Oleg Romanishin varð efstur öldunga.

Úkraínski stórmeistarinn Olev Romanishin (2415) varð efstur öldunga. Áskell Örn Kárason varð efstur íslenskra skákmanna.

Röð Titill Nafn Stig Vinn. Verðl.
1 GM Romanishin Oleg M 2415 400
2 IM Large Peter G 2293 200
3 IM Povah Nigel E 2216 150

 

Ungmenni (u16)

Ungmennin með sigurlaunin.

Mishra Abhimanyu (2524) varð efstur ungmenna. Benedikt Briem varð efstur Íslendinga.

Rank Name Rtg Pts Verðl.
1 GM Mishra Abhimanyu 2524 7 250
2 IM Yoo Christopher Woojin 2532 150
3 GM Gukesh D 2637 6 100

 

Kvennaverðlaun

Tania og þær sem unnu kvennaverðlaunin

Indverska skákdrottningin Tania Sachdev (2392) átti afar gott mót og vann kvenaverðlaunin. Tinna Kristín Finnbogadóttir (1848) og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir urðu efstar íslenskrar kvenna (1973),

Rank Name Rtg Pts Verðl.
1 IM Tania Sachdev 2392 6 750
2 IM Brunello Marina 2337 450
3 WFM Cramling Bellon Anna 2057 300

 

Stigaverðlaun (2201-2400)

Verðlaunahafarnir í 2201-2400 flokknum.

Danski alþjóðlegi meistarinn, Kassa Korley (2400) varð efstur í stigaflokknum. Sigurbjörn Björnsson (2306) og Hilmir Freyr Heimisson (2321) urðu efstir Íslendinga.

Rank Name Rtg Pts Verðl.
1 IM Korley Kassa 2400 250
2 IM Sarkar Justin 2314 150
3 IM Song Julien 2373 6 100

 

Stigaverðlaun (2201-2400)

Verðlaunahafar í 2001-2200 flokknum.

Þjóðverjinn Vitalaliy Garbuz vann flokkinn. Bræðurnir Stephan (2048) og Benedikt Briem (2062) urðu efstir Íslendinga.

Rank Name Rtg Pts Res.
1 Garbuz Vitaliy 2142 6 250
2 Zysko Jan 2110 150
3 Player Edmund C 2196 100

 

Stigaverðlaun (0-2000)

Anand með verðlaunin.

Vignesh Anand (1829) varð efstur. Jóhann H. Ragnarsson (1913) varð efstur Íslendinga.

Rank Name Rtg Pts Verðl
1 Anand Vignesh 1829 250
2 Filipovich David 1975 150
3 Hartmann Wolfgang Dr. 1927 100

 

Besti árangur í samanburði við eigin skákstig

  1. Birkir Hallmundarson 574 (1736-1162)  – €250
  2. Tómas Möller 517 (1857-1340) – €150
  3. Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson 457 (1851-1394) – €100

Mestu stigahækkanir

Þorsteinn Jakob F. Þorsteinnsosn (113) hækkaði mest allra á mótinu. Næstir voru Birkir Hallmundarson (+93) og Ingvar We Skarphéðinsson (+85).

Alls runnu 530 inn í íslenskt skákstigakerfi. Eftirtaldir Íslendingar hækkuðu um 30 stig eða meirra

Thorsteinsson Thorsteinn Jakob F 113
Hallmundarson Birkir 93
Skarphedinsson Ingvar Wu 85
Briem Benedikt 84
Moller Tomas 78
Gudmundsson Gunnar Erik 63
Omarsson Josef 54
Briem Gudrun Fanney 46
Johannsson Markus Orri 44
Thorisson Benedikt 42
Ragnarsson Johann 38
Briem Stephan 35
Stefansson Benedikt 33
Hoskuldsson Sigurdur Heidar 31
Palsson Oli 29

 

Skáksambandið þakkar öllum þem sem tók þátt. 245 keppendur frá 40 löndum tóku þátt. 71 Íslendingur tefldu og stemmingarinnar í Hörpu.

Sérstakar þakkir fá styrktaraðilar mótsins, Reykjavíkurborg, Kvika eignastýring og FIDE voru stærstu styrktaraðilar mótsins. Færum við þeim miklar þakkir fyrir.

Hannes Frímann Hrólfsson lék fyrsta leikinn í gær.

Hannes Frímann Hrólfsson, framkvæmdastjóri Kviku eignastýringar lék fyrsta leik lokaumferðarinnar.

Sá sem þetta ritar vill færa starfsólki mótsins miklar þakkir. Einfaldlega besta starfsfólk sem til er í skákheimum!Þorsteinn Magnússon tók allar myndirnar.

- Auglýsing -