Skákdeild Fjölnis bauð öllum sínum efnilegu og áhugasömu skák-krökkum upp á ævintýri í Eyjum helgina 7. og 8. maí. Í samstarfi við Skákskóla Íslands og með stuðningi Reykjavíkurborgar – Sumarborgin, var hægt að bjóða krökkunum upp á fría skákbúðaferð með glæsilegum hætti.

Helgi Árnason formaður Skákdeildar Fjölnis var fararstjóri og hafði sér til aðstoðar 10 flotta foreldra sem allir nutu ferðarinnar vel. Reyndustu og bestu skákkennarar landsins, þeir Helgi Ólafsson og Björn Ívar Karlsson skipulögðu og sáu um alla kennslu og skákmót skákbúðanna. Ásamt þeim voru til aðstoðar þeir skákkappar Jóhann Arnar Finnsson og Kristján Dagur Jónsson. Loks má geta þess að Gunnlaugur Egilsson stjórnarmaður i Skákdeild Fjölnis ók rútunni endurgjaldslaust og var með hópnum allan tímann.

Auk þess að bjóða upp á frábæra kennslu í skák og þátttöku í skákmótum þá var krökkunum boðið í tvær girnilegar hádegismáltíðir á Veitingastaðnum GOTT, einnig morgunmat og kvöldhressingu. Gist var í Grunnskóla Vestmannaeyja og teflt í flottu félagsheimili Taflfélags Vestmannaeyja. Auk skákkennslunnar var haldin kvöldvaka, skellt sér í sund og boðið upp á frjálsan tíma á þessum áhugaverða stað sem Vestmannaeyjar eru.

Allir krakkarnir, sem voru á aldrinum 8 – 14 ára nýttu sér skákkennsluna og skemmtu sér hið besta allan tímann. Hegðun þeirra var til fyrirmyndar enda voru þau vel-meðvituð um einstakt boð og frábært tækifæri til að bæta árangurinn.

Skákdeild Fjölnis vill þakka Helga Ólafssyni skólastjóra Skákskóla Íslands fyrir samstarfið við skákbúðir Fjölnis, Reykjavíkurborg fyrir góðan styrk, skólastjórnendum og húsverði við Grunnskóla Vestmannaeyja fyrir að hýsa okkur og síðast en ekki síst Sæmundi Einarssyni frá Taflfélagi Vestmanneyja fyrir að veita okkur aðstöðu í félagsheimili taflfélagsins og aðstoð á ýmsan hátt.

.

- Auglýsing -