Indverski stórmeistarinn Vishy Anand (2761) sýnir fá merki að vera ryðgaður þrátt fyrir að hafa ekki teflt í kappskákmóti í rúm tvö ár og er efstur með 7½ stig eftir 3 umferðir á Norway Chess. Hann vann MVL (2750) í fyrstu umferð og Veselin Topalov (2730) í 2. umferð. Í þriðju umferð hafði hann svo betur gegn Wang Hao (2744) en þurfti til þess bráðabana eftir jafntefli í kappskákinni. Fyrir það fékk hann 1½ stig.
Wesley So (2766) er annar með 6 stig. Magnús Carlsen (2864) er þriðji með 5½ stig. Hann gerði jafntefli í 1. og 2. umferð gegn Wang Hao og Wesley So. Vann bráðabanann gegn Wang Hao en tapaði gegn So. Í gær vann hann svo sínu fyrstu kappskák þegar hann lagði Teimor Radjabov (2753) að velli.
Fyrirkomulagið er þannig að tefld er kappskák. Sigurvegarinn fær 3 stig. Geri keppendur jafntefli fá báðir 1 stig. Tefldur þá einnig bráðabani og fær sigurvegarinn auka hálft stig.
Keppendalistinn er áhugaverður. Vegna áskorendamótsins í Madrid sem hefst 17. júní tefla áskorendurnir ekki á Norway Chess að Radjabov undanskildum.















