Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2534) tapaði í gær fyrir pólska alþjóðlega meistaranum Jonasz Baum (2409) á alþjóðlegu móti í Póllandi. Hannes hefur engu að síður staðið sig afar vel og hefur 4½ vinning og er í 3.-4. sæti að loknum sjö umferðum.

Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Hannes mætir þá pólska FIDE-meistaranum Mieszko Mis (2388). Umferðin hefst kl. 13.

Um er að ræða 10 manna lokaðan flokk þar sem meðalstigin eru 2445 skákstig. Hannes er næststigahæstur keppenda.

Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2455) hefur í dag þátttöku á alþjóðlegu opnu móti í Cattolica á Ítalíu sem fram fer í 4.-11. júní.  Nánar um það mót þegar frekari upplýsingar berast.

- Auglýsing -