Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.

Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).

Í júní, júlí, og ágúst verða Þriðjudagsmótin aðra hvora viku. Dagskráin:

  1. júní, 21. júní
  1. júlí, 19. júlí
  1. ágúst, 16. ágúst, 30. ágúst

…og síðan vikulega frá og með september

Tveir urðu efstir og jafnir að vinningum á Þriðjudagsmótinu í síðustu viku og það gerðist einfaldlega þannig að þeir gerðu jafntefli í innbyrðis viðureign á 4. og næstsíðustu umferð en unnu aðra andstæðinga. Þegar upp var staðið taldist Eiríkur sigurvegari á 1 Bucholz stigi en Kristófer Orri Guðmundsson fór hins vegar heim með verðlaun fyrir besta árangur á frammistöðustigum. Þetta hefur reyndar orðið sigurvegaranum og skákstjóranum (sem líka skrifar þessar línur) tilefni til hugleiðinga um aðrar leiðir til að ákvarða sigurvegara þegar tveir eru efstir og jafnir en þær hugleiðingar verða ef til vill gerðar opinberar síðar.

Öll úrslit og stöðu Þriðjudagsmótsins má annars nálgast hér á chess-results.

Nú tekur við sumarskipulag á Þriðjudagsmótum en næsta mót verður samt sem áður strax 7. júni n.k. en síðan annan hvern þriðjudag eftir það.

 

- Auglýsing -