Haustmót Taflfélags Reykjavíkur kláraðist í gær með öruggum sigri Jósefs Omarssonar. Jósef, sem er 15 ára, vann A-flokk mótsins mjög örugglega með 8½ vinning eftir skákirnar 9. Eini punkturinn sem hann missti niður var jafntefli gegn greinarhöfundi! Sú skák var í járnum mestallan tímann. Jósef tefldi gríðarlega vel í mótinu og gerði fá mistök. Reyndar hélt ég að nú væri tækifærið mitt til að verða skákmeistari TR, en ekki í ár, Jósef var óstöðvandi! Eftir mótið rýfur hann 2200 stiga múrinn, en hann hækkar um 132 stig eftir árangurinn.
Jósef er í hópi þeirra yngstu sem hafa orðið skákmeistarar TR, og þá sérstaklega þeirra sem hafa unnið A-flokkinn, það þarf reyndar að skoða hvort hann hafi slegið það met.
Allavega varð Vignir í 3. sæti mótsins árið 2016 þegar hann var efstur TR-inga. Vignir Vatnar Stefánsson varð skákmeistari TR 13 ára árið 2016. Helgi Áss Grétarsson varð skákmeistari TR 14 ára árið 1991. Hannes Hlífar Stefánsson 14 ára árið 1986 og Jón L. Árnason 15 ára árið 1976. Ekki slæmur félagsskapur!
Bárður Örn Birkisson var vinningi á eftir Jósef í öðru sæti greinarhöfundur þriðji með sex vinninga. Í A-flokki tefldu tíu skákmenn allir við alla.

Aðeins einn lokaður flokkur var í mótinu í ár, en opni flokkurinn var vel skipaður ungum skákmönnum í bland við eldri og reynslumeiri. Sigurvegari flokksins hefur þó varla verið á bingóspjaldi margra. Það var hinn átta ára gamli (!) Helgi Fannar Óðinsson sem vann ofan á það ótrúlega öruggan sigur. Helgi var búinn að vinna flokkinn fyrir síðustu umferð, slíkir voru yfirburðir hans! Í opna flokknum voru tefldar níu umferðir eftir svissneska kerfinu og var Helgi nr. 16 í byrjunarröð (starting rank) af 27 keppendum. Það voru því ungir sigrar á Haustmóti TR 2026!
A-flokkur á chess-results.
Opinn flokkur á chess-results.
Slóð á beinleiðis skákir á lichess.
- Auglýsing -















