Mánaðarlegt hraðskákmót Skákfélags Mosfellsbæjar fer fram næstkomandi laugardag, 26. september, í Fiskabúrinu innan við bókasafnið að Þverholti 2 í Mosfellsbæ. Mótið hefst kl. 12:30 og lýkur um kl. 14:30.

Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum 4+3, þ.e. fjórar mínútur á mann með þriggja sekúndna viðbótartíma fyrir hvern leik. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Kaffi verður á staðnum í boði bókasafnsins og því tilvalið að hefja laugardaginn á góðri skák í Mosfellsbæ.

Öll hjartanlega velkomin! Hámarksfjöldi keppenda er 32.

Sigurvegarar fyrri mánaðarmóta á árinu:

Febrúar – Gauti Páll
Mars – Rögnvaldur Jónsson
Apríl – Gauti Páll Jónsson
Maí – Daníel Hákon Friðgeirsson

Skráning hér

- Auglýsing -