Matthías Björgvin með góðan sigur í dag. Mynd: BKS

Alexandr Domalchuk því miður þá enda öll ævintýri einhverntíman og þessi ótrúlega sigurganga hlaut að taka sinn enda og það gerðist því miður í dag.
Alexandr tefldi gegn alþjóðlegum meistara frá Spáni með tæplega 2500 stig og fékk ágætis stöðu úr byrjuninni en sá spænski tefldi afar vel og nýtti sér nokkra ónákvæma leiki frá okkar manni.
Hann er samt sem áður ennþá á frábærum stað í mótinu og ennþá þrjár umferðir eftir, svo ég ætla spá því að hann sé ekki búinn að segja sitt seinasta í þessu móti.

Hannes Hlífar sigraði pólskan FM með svörtu afar sannfærandi.

Hilmir Freyr tapaði gegn 2200 stiga Pólverja.

Vignir Vatnar gerði jafntefli við 2200 stiga mann með svörtu, VVS var skiptamuni yfir en andstæðingur hans með mikla sókn á kóngsvængnum og jafntefli líklega sanngjörn niðurstaða.

Benedikt Briem gerði jafntefli með hvítu gegn tæplega 2400 stiga heimamanni, þar sem andstæðingur BB sýndi honum mikla virðingu og þáði jafntefli með þökkum.

Alexander Oliver tapaði gegn tékkneskum FM með tæplega 2400 stig.

Matthías Björgvin sigraði tæplega 2100 stiga mann sannfærandi með hvítu – MBK var búinn að undirbúa Grunfeld vel fyrir skákina og var ennþá á „eldhúsborðinu“ í 20.leik og tefldi skákina eins og algjör herforingi, frábær úrslit hjá honum og gott fyrir sjálfstraustið.

Mikael Bjarki sigraði stigalausan andstæðing sannfærandi.

Staðan:

Alexandr og Hannes Hlífar eru með 4.5/6

Benedikt Briem, Hilmir Freyr og Vignir Vatnar eru með 3.5/6

Alexander Oliver er með 3/6

Matthías Björgvin og Mikael Bjarki eru með 2/6.

Kveðjur frá Prag,
Birkir Karl Sigurðsson

- Auglýsing -