Alekandr hefur fullt hús eftir tvær umferðir.

Við sóttum fjóra vinninga af átta í fimmtu umferð.

Það sem helst ber að nefna er að Alexandr sigraði pólskan alþjóðlegan meistara með svörtu og er kominn með 4.5 vinning af 5 mögulegum og er að eiga mót lífs síns.

Sömuleiðis er Hilmir Freyr búinn að taka þrjár skákir í röð og er búinn að endurheimta sjálfstraustið sitt.

Hannes Hlífar tefldi gegn alþjóðlegum meistara frá Bandaríkjunum og var með verra eftir byrjunina en náði að jafna taflið í miðtaflinu – kom upp staða þar sem Hannes var með drottningu fyrir hrók og biskup + tvö peð og kóngurinn hjá Hannesi var orðinn ansi berskjaldaður og tapaði að lokum.

Alexandr Domalchuk fékk alþjóðlegan meistara frá Póllandi með svart og fékk aðeins verra úr byrjuninni eftir að hafa teflt franska vörn en eftir ónákvæman leik hjá hvítum í miðtaflinu fékk Alexandr tækifæri sem hann nýtti sér fulls og hafði sigur með óaðfinnanlegri taflmennsku. Alexandr er að ná eftirtektarverðum árangri með 4.5/5 og er að koma bæði sjálfum sér og hópnum á óvart með þessum frábæra árangri.

Benedikt Briem tefldi gegn Þýskum FM með hvítt og fékk afar þæginlega stöðu eftir byrjunina en lék af sér um miðja skák og sá Þýski nýtti sér það og komst í drottninga endatafl tveimur peðum yfir og sigldi sigrinum heim.

Hilmir Freyr fékk svart gegn 2200 stiga heimamanni og tefldi skákina afar vel, skákin var taktísk og staðan ansi þröng, en Hilmir tefldi skákina virkilega vel og sigraði skákina örugglega.

Vignir Vatnar fékk tæplega 2100 stiga heimamann.
Vignir rétt svo marði andstæðing sinn eftir að vera búinn að vekja upp tvær drottningar gegn engri hjá andstæðing sínum.
VVS er búinn að lofa mér og þjóðinni að hreinsa rest.

Alexander Oliver tefldi afar þægilega og góða skák gegn rúmlega 1900 stiga manni og sigldi sigrinum örugglega í höfn.

Mikael Bjarki tapaði gegn rúmlega 1900 stiga Bandaríkjamanni sem er fæddur árið 2008 og greinilega mjög efnilegur, Mike fékk góða stöðu úr byrjuninni en misreiknaði sig aðeins um miðbik skákar og tap því miður staðreynd.

Matthías Björgvin fékk heimamann með rúmlega 1900 stig og tefldi byrjunina ónákvæmt og fékk töluvert verra í framhaldinu og tapaði.

Tékklandsfararnir.

Staðan:

Alexandr Domalchuk er með 4.5 af 5 mögulegum og er eins og áður sagði til alls líklegur í þessu móti.

Hannes Hlífar og Hilmir Freyr eru báðir með 3.5 vinninga.

Vignir Vatnar, Benedikt Briem og Alexander Oliver eru allir með 3 vinninga.

Mikael Bjarki og Matthías Björgvin eru báðir með einn vinning.

Næsta umferð fer fram á morgun klukkan 13 að íslenskum tíma.

Kveðjur frá Prag,
Birkir Karl Sigurðsson

- Auglýsing -