Fimm vinningar af átta mögulegum var niðurstaðan í fjórðu umferð.
Frábær úrslit hjá bæði Alexander og Benedikt Briem er það sem helst stendur upp úr þessari umferð.
Hilmir Freyr sigraði rúmlega 2100 stiga mann sannfærandi og tefldi frábæra skák í Trompowski og mátaði andstæðing sinn í aðeins 29 leikjum, Hilmir is back on track tala gárungarnir um.
Benedikt Briem sigraði tæplega 2400 stiga mann með svörtu og þrátt fyrir að hafa fengið verri stöðu úr byrjuninni sýndi Benedikt mikla seiglu og náði að snúa skákinni sér í vil og endaði á að máta andstæðing sinn. Benedikt að eiga gott mót með 3/4.
Matthías Björgvin tefldi á móti stigalausum andstæðing og var kominn með koltapað en sem betur fer þá byrjuðu þeir báðir að „blitza“ og lék andstæðingur hans skelfilega af sér og sigldi MBK vinningnum örugglega heim eftir það.
Mikael Bjarki tefldi maraþonskák gegn stigalausum andstæðing þar sem hann hafði sigur eftir vel útfært endatafl.
Alexander Domalchuk tefldi afar taktíska skák gegn Indverskum stórmeistara þar sem Alexander var með aðeins verra nær alla skákina og endaði á að fara í drottninga endatafl peði undir, þar sem hann þurfti alltaf að hitta á réttan leik til þess að halda jafnteflinu.
Alexander tefldi endataflið eins og herforingi og hitti alltaf á réttan leik og sigldi jafnteflinu í höfn, frábær skák hjá honum og hann heldur áfram að gera magnaða hluti.
Hannes Hlífar samdi stutt jafntefli með svörtu gegn stórmeistara frá Tékklandi.
Vignir Vatnar tapaði gegn tæplega 2200 stiga Pólverja og er ekki að byrja mótið nægilega vel.
Alexander Oliver tapaði gegn FM með tæplega 2400 stig – skákin var í jafnvægi nær allan tímann en sá pólski hafði þetta að lokum.

Staðan:
Alexander Domalchuk og Hannes Hlífar eru báðir í efstu sætum með 3.5/4.
Benedikt Briem er að eiga gott mót með 3/4.
Hilmir Freyr búinn að taka tvær skákir í röð og er með 2.5/4
Vignir Vatnar og Alexander Oliver eru báðir með tvo vinninga – Vignir hefur ekki verið að tefla vel á mótinu hingað til, en það er ennþá nóg eftir.
Mikael Bjarki og Matthías Björgvin komu sér báðir á blað í dag eins og undirritaður lofaði og eru með 1/4.
Fimmta umferð fer fram á morgun klukkan 13.00 að íslenskum tíma.
Kveðjur frá Prag,
Birkir Karl Sigurðsson
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)















