Það sem helst stendur upp úr þessari umferð er glæsilegur sigur Hannesar sem þýðir að hann er ennþá í góðu tækifæri á að vinna þetta mót.
Sömuleiðis ber að nefna flottan sigur hjá Mikael Bjarka gegn stigahærri heimamanni.
Í heildina tókum við fimm vinninga af átta mögulegum.
Hannes Hlífar tefldi gegn FM Wagh Suyog (2352) og var skákin í miklu jafnvægi til að byrja með. Hannes fékk svo hægt og bítandi betri og betri stöðu og endaði á að vinna skákina nokkuð sannfærandi.
Alexandr Domalchuk tapaði annarri skákinni í röð gegn IM Craig Hilby sem hefur leikið okkur Íslendingana grátt þar sem hann sigraði Hannes líka.
Eins og áður sagði er þetta ennþá frábært mót hjá Alexandr og ennþá tvær mikilvægar skákir eftir.
Vignir Vatnar og Benedikt Briem gerðu jafntefli í svokölluðum Íslendinga Slag þar sem Vignir ætlaði að reyna að vinna hann í fyrstu 20 leikjunum annars ætlaði hann að bjóða jafntefli, sem hann og gerði. Benedikt Briem að eiga flott mót en ákveðin lægð í gangi hjá Vigni.
Hilmir Freyr sigraði rúmlega 2100 stiga mann sannfærandi í Trompowski, annað sinn á mótinu sem HF beitir Trompowski og vinnur sannfærandi.
Alexander Oliver sigraði rúmlega 2000 stiga mann með svörtu og heldur áfram að vinna og tapa til skiptis, vonandi nær hann á morgun að „break the pattern“ og taka tvær sigur skákir í röð.
Matthías Björgvin tapaði gegn tæplega 1900 stiga manni eftir frábæra frammistöðu á Blitz mótinu í morgun.

Mikael Bjarki tefldi virkilega góða skák gegn efnilegum heimamanni með rúmlega 1800 stig, upp kom Chigorin vörn sem Mikael Bjarki var búinn að fara vel yfir og sigraði skákina sína afar sannfærandi.
Staðan:
Hannes Hlífar er meðal efstu manna með 5.5/7
Alexandr Domalchuk og Hilmir Freyr eru báðir með 4.5/7
Alexandr hefur aðeins fatast flugið eftir frábæra byrjun, sem er eðlilegt þar sem hann er að tefla á móti sterkum andstæðingum.
Hilmir er hins vegar með þrjá vinninga af seinustu fjórum mögulegum og er að tefla virkilega vel.
Alexander Oliver, Benedikt Briem og Vignir Vatnar eru allir með fjóra vinninga.
Alexander og Benedikt að eiga solid mót, sérstaklega BB en VVS þarf að rífa sig í gang.
Mikael Bjarki er kominn með þrjá vinninga eftir glæsilegan sigur í dag.
Matthías Björgvin er með tvo vinninga.
Á morgun fer fram næstseinasta umferð.
Þar til næst.
Bkv,
Birkir Karl Sigurðsson
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)
















