Alexander Oliver Mai skákmeistari TR 2022

Jósef Omarsson (1546) vann sína skák á Teplice Open í Tékklandi í gær. Lenka Ptácníková (2120) og Adam Omarsson (1742) töpuðu.

Lenka hefur 3½ vinning, Adam hefur 2½ vinning og Jósef hefur 2 vinninga.

Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag.

——

Alexander Oliver Mai (2183) vann Ítala með 2000 skákstig á alþjóðlega mótinu í Trevisio á Ítalíu í gær. Hilmir Freyr Heimisson (2351) tapaði fyrir ítalska stórmeistaranum Peir Luigi Basso (2558).

Alex hefur 4 vinninga en Hilmir hefur ½ vinning. Þess má geta að Hilmir hefur teflt við mun sterkari andstæðinga.

Tvær umferðir fara fram í dag.

- Auglýsing -