Þröstur vann í gær.

Íslenska liðið vann 4-0 stórsigur gegn enskri kvennasveit í 4. umferð HM öldungasveita sem fram fór í gær.

Íslenska liðið er nú í 6. sæti með 6 stig og 10½ vinning.

Fimmta umferð fer fram í dag og þá mætir íslenska liðið Þýskalandi sem hefur á að skipta sjöundu sterkustu sveit mótsins. Margeir Pétursson hvílir. Það er áhugavert að Þjóðverjar hvíla sinn sterkasta mann, stórmeistarann Klaus Bischoff (2495), á móti Íslendingum. Því miður verður viðureignin ekki sýnd beint.

23 sveitir taka þátt í flokki 50+. Sveit Íslands er sú fjórða stigahæsta.

- Auglýsing -