Nepo vann Rapport í gær. Mynd: Heimasíða FIDE.

Ian Nepomniachtchi (2766) og Fabiano Caruana (2783) eru í algjörum sérflokki á áskorendamótinu í skák sem fram fer í Madrid á Spáni og ljóst að annar hvor þeirra vinnur mótið. Sú spurning hvort að Magnús Carlsen muni verja titilinn er því orðinn býsna áleitinn. Mætast kannski Nepo og Caruana í næsta heimsmeistaraeinvígi?

Caruana lagði Radjavov sannfærandi að velli. Mynd: Heimasíða FIDE.

Nepo vann Richard Rapport (2764) í gær eftir að sá síðarnefndi freistaði þess að tefla til sigurs stöðu þar sem ekkert annað en jafntefli var í boði. Carauna vann sannfærandi sigur Teimor Radjabov (2753).

Áttunda umferð fer fram í dag. Nepo teflir við Ding Liren (2806) og Caruana við landa sinn Hikaru Nakamura (2760). .

Sjá nánar frétt á Chess.com.

 

- Auglýsing -