Íslenska liðið að tafli á Ítalíu. Mynd: Facebook-síða mótsins.

Sjötta umferð HM öldungasveita fer fram í dag. Ísland mætir sterkri sveit Bandaríkjanna sem hefur á að skipa næststerkastu skáksveitina á pappírnum.

Margeir Pétursson kemur inn í liðið en Helgi Ólafsson hvílir í dag.

Íslenska liðið er nú í 4. sæti með 8 stig og 13½ vinning.

Viðureignin við Bandaríkin verður sýnd beint. Útsending hefst kl. 13.

23 sveitir taka þátt í flokki 50+. Sveit Íslands er sú fjórða stigahæsta.

- Auglýsing -