Alexander Oliver Mai skákmeistari TR 2022

Alexander Oliver Mai (2183) og Hilmir Freyr Heimisson (2351) gerðu jafntefli í innbyrðis viðureign í lokaumferð alþjóðlega mótsins í Treviso á Ítalíu.

Alexander hlaut 5 vinninga og endaði í 5.-6. sæti. Hann hækkaði um 22 stig fyrir frammistöðu sína.

Hilmir Freyr náðist sér aldrei á strik á mótinu og hlaut 1½ vinning.

—–

Lenka Ptácníková (2120), Adam (1742) og Jósef Omarssynir (1546) töpuðu öll sínum skákum í níundu og síðustu umferð Teplice Open sem fram fór í gær.

Lenka hlaut 3½ vinning, Adam hlaut 2½ vinning og Jósef hlaut 2 vinninga. Adam hækkar um 51 stig fyrir frammistöðu sína en Jósef um 9 stig.

- Auglýsing -